Fara í aðalinnihald
Góðan dag
Nú er klukkan ekki einu sinni orðin sjö. Mér finnst þetta góður tími til að setjast niður við tölvuna á meðan bóndinn les moggann og börnin eru að stússa í morgunverkum sínum. Þau eru svo stór að þau sjá um það sjálf, sonurinn 14 ára eftir þrjá daga og dóttirin 12 ára eftir 8 daga. Sonurinn liggur reyndar í flensu og er með mikinn hita. Fór ekki í skólann í gær og fer trúlega ekki í skólann þessa viku. Nemendur og kenanrar eru að leggjast hver af öðrum þessa dagana. Sex nemendur af 18 voru veikir í mínum bekk í gær. Það er bara óskandi að ég sleppi, má ekki vera að því að liggja í rúminu.
Áætlun stóðs ekki alveg í gær, ég undirbjó rannsóknina hennar Sólveigar, las yfir og sigtaði út hvaða nemendur ég ætti að velja. Mig langar að velja tvo af mínum nemendum og tvo í eldri bekkjum. Ég las yfir hvað ég þarf að gera og prentaði út eyðublöð fyrir skólastjóra og foreldra. Ég skrifaði ekki út til Danmerkur eins og var á áætluninni. Það var nefnilega spilakvöld hjá dótturinni (ég var búin að gleyma því) pabbi hennar fór með henni þangað. Ég var með veika syninum heima, honum leiddist mikið. Var búinn að vera aleinn heima allan daginn. Ég chattaði aðeins við vinkonurnar og sendi emil á aðra. það verður að hafa samskiptin góð. Í gær fór ég líka út að hlaupa. Hljóp 10 km. og fór í heita pottinn á eftir. þetta var ágætur dagur bæði í vinnunni og heima.
Í dag ættum við að fá boðskortin í fermingarveislu sonarins úr prentun og þá getum við sent þau út á morgun.

Nú er grenjandi rigning og aðeins byrjað að hvessa, annars 8.5 °C, þannig að það er vor í lofti.

kveðja
mas

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Ég held að Danir séu fremur mikil jólabörn, heimili þeirra eru alla vega ansi jólaleg. Þeir vilja þó ekki vera mjög áberandi, jólaseríurnar eru flestar hvítar, þó sést í eina og eina í öðrum lit. Algengt er að sjá jólatré á svölunum hjá fólki, flest eru þau með seríum og sum meira að segja skreytt jólakúlum og öllum pakkanum. Margir eru líka búnir að setja upp jólatréð inni og vorum við einmitt að fylgjast með því þegar nágranni okkar var að skreyta það hjá sér í gær. Strax þriðja í jólum er eins og það hafi ekki verið jól, allt búið, jólatrén komin út, slökkt á öllum seríum og útsölur hafnar í öllum búðum. Við höldum í okkar íslensku hefð, séría í öllum regnbogans litum á svölunum og jólatréð ekki upp fyrr en á Þorláksmessu og ekki tekið niður aftur fyrr en á þrettándanum. Danir skilja ekkert í þessum þrettán jólasveinum sem við eigum.

Laugavegurinn 2013

Hópurinn safnaðist saman kl. 3:50 við Ásvelli. Vorum komin við Skautahöllina tímanlega, en samt voru flestar rútur orðnar fullar, þannig við fengum aftasta bekkinn í einni rútunni, auk tveggja stakra sæta. Keyrt var að Hrauneyjum, en þar stoppaði rútan í 25 mín. Tími fór í að bíða eftir klósettum og síðan var löng röð í morgunmatinn. Við rétt náðum í brauð og kaffi til að taka með okkur í rútuna. Kaffið var gott, en ákveðið var að taka með nesti næst. Við vorum kom í Landmannalaugar um 8:20.. þá átti eftir að skrá sig og pissa og setja vatn á brúsa.. Bæta þurfti á fötum og fleira. Þetta rétt hafðist fyrir ræsingu. Allur hópurinn lagði af stað saman. Jóney og Júlíana fóru þó strax í upphafi á undan. Við fjórar héldum hópinn í Hrafntinnusker. Björgvin var aðeins á eftir okkur. Mér fannst erfitt að fara yfir snjóbreiðurnar en þær voru á tveggja km kafla fyrir Hrafntinnusker. Þar sem ég vissi hve kaflinn var langur þá átti ég auðveldara með að komast yfir. Eftir Hrafntinnusker missti ég ...

Að hefja samtöl og opna dyr: Hvernig skólastjórar koma á jákvæðri menningu til að viðhalda umbótastarfi skóla

 Þetta byggist allt á trausti...  Hægt er að líka trausti við loft; enginn veltir skorti á því mikið fyrir sér fyrr en þess er þörf og það er ekki til staðar (Hoy og Miskel, 2013). Traust innan skóla er mikilvægt vegna þess að það auðveldar samvinnu, eykur hreinskilni, stuðlar að samheldni, styður fagmennsku, byggir upp skipulagsgetu og allt þetta stuðlar að bættum námsárangri hjá nemendum. Faglegt samstarfi byggir á gagnkvæmu trausti. Hoy og Miskel tala um að í traustu samstarfi séu einstaklingar háðir hver öðrum; það er, hagsmuni eins er ekki hægt að tryggja án þess að til staðar sé traust á öðrum. Traust þarf að ríkja meðal kennara, annars starfsfólks, stjórnenda, nemenda og foreldra. Þegar starfsfólk ber mikið traust til skólastjóra, telur það að hann sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur og opinn í samskiptum. Þannig er traust vilji starfsfólks til að berskjalda sig fyrir öðrum, byggt á þeirri trú að sá aðili sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur ...