Fara í aðalinnihald
Nú hef ég ekki skrifað í tvo daga.

Örráðstefnan gekk mjög vel á miðvikudaginn. Í hverjum hópi voru líflegar umræður. Niðurstaðan var sú að við höfum öll margar góðar hugmyndir og ættum að hittast oftar og ræða málin og skiptast á hugmyndum. Kennarar og starfsfólk skólana í Borgarbyggð hefur hingað til ekki hist til þess að ræða kennsluhætti. Það væri mjög góð símenntun ef við nýttum okkur þekkingu hvers annars. Hérna eru sérfræðingar í hverju skoti, ekki þarf alltaf að fara út fyrir skólaumhverfið til að fá færa sérfræðinga.
Eftir ráðstefnu var farið heim að undirbúa afmæli dótturinnar (fór reyndar í ræktina fyrst). Bakaðar voru kökur og horn. Dóttirin bjó sjálf til hrísköku.

Í gær luku margir nemendur við verkefnin um Austurland. Ég get trúlega krækt í síðuna í næstu viku. Við höldum áfram í dag. Ætlunin er að halda foreldrasýningu í næstu viku. Þegar nemendur voru að vinna þetta verkefni og í upplýsinga leit fyrir það ákvað ég að nota tækifærið og leggja könnina fyrir. Ég lagði hana fyrir tvo stráka og tvæ stelpur. Þau eru orðin nokkuð fær í að finna upplýsingar á Netinu. Annar strákanna hefur ekki aðgang að tölvu heima, en hinn hefur takmarkað aðgengi þar sem tölvan hefur verið að bila. Báðar stelpurna hafa aðgang að tölvum, en önnur aðgang að Netinu en hin ekki. Það verður spennandi að sjá hvernig þau koma út miðað við önnur 10 ára börn í landinu.

Haldið var upp á afmæli dótturinnar með pompi og prakt í gær. 14 stelpur og einn strákur. Dóttirin ásamt vinkonu hennar skipulögðu daginn og held ég að allir hafi verið ánægðir. Deginum var lokið með því að fara á leiksýningu nemendafélags Grunnskólans í Borgarnesi. Sett var upp Litla hryllingsbúðin og sá Jakob Þór Einarsson um leikstjórn. Krakkarnir stóðu sig með miklum ágætum. þarna innan um eru hæfileikaríkir einstaklingar. Sonurinn var í tæknimálunum ásamt fleiri krökkum. Hann hefur lítið verið heima upp á síðkastið. Nú taka sýningar við og þá verður hann bundið við þær. En þetta er mjög gaman og þau hafa mjög gott af þessu.

kveðja
mas

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Ég held að Danir séu fremur mikil jólabörn, heimili þeirra eru alla vega ansi jólaleg. Þeir vilja þó ekki vera mjög áberandi, jólaseríurnar eru flestar hvítar, þó sést í eina og eina í öðrum lit. Algengt er að sjá jólatré á svölunum hjá fólki, flest eru þau með seríum og sum meira að segja skreytt jólakúlum og öllum pakkanum. Margir eru líka búnir að setja upp jólatréð inni og vorum við einmitt að fylgjast með því þegar nágranni okkar var að skreyta það hjá sér í gær. Strax þriðja í jólum er eins og það hafi ekki verið jól, allt búið, jólatrén komin út, slökkt á öllum seríum og útsölur hafnar í öllum búðum. Við höldum í okkar íslensku hefð, séría í öllum regnbogans litum á svölunum og jólatréð ekki upp fyrr en á Þorláksmessu og ekki tekið niður aftur fyrr en á þrettándanum. Danir skilja ekkert í þessum þrettán jólasveinum sem við eigum.

Laugavegurinn 2013

Hópurinn safnaðist saman kl. 3:50 við Ásvelli. Vorum komin við Skautahöllina tímanlega, en samt voru flestar rútur orðnar fullar, þannig við fengum aftasta bekkinn í einni rútunni, auk tveggja stakra sæta. Keyrt var að Hrauneyjum, en þar stoppaði rútan í 25 mín. Tími fór í að bíða eftir klósettum og síðan var löng röð í morgunmatinn. Við rétt náðum í brauð og kaffi til að taka með okkur í rútuna. Kaffið var gott, en ákveðið var að taka með nesti næst. Við vorum kom í Landmannalaugar um 8:20.. þá átti eftir að skrá sig og pissa og setja vatn á brúsa.. Bæta þurfti á fötum og fleira. Þetta rétt hafðist fyrir ræsingu. Allur hópurinn lagði af stað saman. Jóney og Júlíana fóru þó strax í upphafi á undan. Við fjórar héldum hópinn í Hrafntinnusker. Björgvin var aðeins á eftir okkur. Mér fannst erfitt að fara yfir snjóbreiðurnar en þær voru á tveggja km kafla fyrir Hrafntinnusker. Þar sem ég vissi hve kaflinn var langur þá átti ég auðveldara með að komast yfir. Eftir Hrafntinnusker missti ég ...

Að hefja samtöl og opna dyr: Hvernig skólastjórar koma á jákvæðri menningu til að viðhalda umbótastarfi skóla

 Þetta byggist allt á trausti...  Hægt er að líka trausti við loft; enginn veltir skorti á því mikið fyrir sér fyrr en þess er þörf og það er ekki til staðar (Hoy og Miskel, 2013). Traust innan skóla er mikilvægt vegna þess að það auðveldar samvinnu, eykur hreinskilni, stuðlar að samheldni, styður fagmennsku, byggir upp skipulagsgetu og allt þetta stuðlar að bættum námsárangri hjá nemendum. Faglegt samstarfi byggir á gagnkvæmu trausti. Hoy og Miskel tala um að í traustu samstarfi séu einstaklingar háðir hver öðrum; það er, hagsmuni eins er ekki hægt að tryggja án þess að til staðar sé traust á öðrum. Traust þarf að ríkja meðal kennara, annars starfsfólks, stjórnenda, nemenda og foreldra. Þegar starfsfólk ber mikið traust til skólastjóra, telur það að hann sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur og opinn í samskiptum. Þannig er traust vilji starfsfólks til að berskjalda sig fyrir öðrum, byggt á þeirri trú að sá aðili sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur ...