Fara í aðalinnihald

Mánudagur

Nú er runninn upp mánudagur og ný vika hafin.
Síðasta vika var svo annasöm hjá mér að ég gaf mér ekki tíma til að setjast niður til að skrifa dagbókina.
Á þriðjudaginn lentu Inga Margrét, Ingi, Guðrún og Atli Steinar. Þau biðu hérna fyrir utan þegar ég koma heim (læst úti). Ég hafði skroppið í atvinnuviðtal í leiðinni heim úr skólanum og átti að byrja í forföllum á fritíðsheimilinu strax daginn eftir. Ég er sem sagt komin með tímabundna vinnu í tvær vikur. Er í skólanum á morgnanna og vinn síðan frá 12:30-17:00.
Við Björn höfðum allt of lítinn tíma til að vera með þeim á daginn, ég var að vinna og Björn að lesa. Kristín Björg og Sverrir Falur vorum mikið með þeim og máttu vinkonunar varla sjá af hvor annarri. Á kvöldin var reynt að elda smá og þá var tími gefinn í smá spjall og skoðanaskipti. Ingi færði mér jólakortin frá ráðherrum sjálfstæðisflokksins sem fóru óvart í rangt hús, voru semsagt til mín.
Helgi, Arndís, Þorgeir og Hringur mættu síðan galvösk á fimmtudaginn og voru fram á laugardag. Þau voru að koma úr Spánarreisu. Helgi eldaði veislumat fyrir okkur á föstudagskvöldið. Inga Margrét og co. voru ekki farin þá, en þau fengu sér gistingu annars staðar í tvær nætur (það hefði þó verið stuð ef við hefðum sofið hérna tólf manns í litlu íbúðinni okkar). Þau komu aftur til okkar á laugardaginn, afmælsdag Atla Steinars. Þá komu Salvör og Bæbi frá Fjóni með krakkana sína. Við fórum fimm fjölskyldur í DGI-byen, sem er skemmtileg vatnaveröld, innanhús, nokkrar sundlaugar, fimm metra stökkpallur, trambólín, heitur pottur og fleira. Hinar fjölsk. voru Hrafnhildur, Viðar og börn og Elín systir Salvar með sínar dætur. Eftir sundið voru keyptir hamborgarar handa liðinu og síðan haldið heim á leið. Um kvöldið var eldað fondue. Við sátum hérna fjögur hjón og höfðum það notarlegt, en börnin voru heima hjá Viðari og Hrafnhildi og höfðu það notarlegt þar með nammi og snakk. Þau yngri voru svo þreytt eftir daginn að þau sofnuðu mjög snemma.


Inga Margrét og Salvör í mjög góðum fílingi


Karlarnir komnir í gírinn

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Ég held að Danir séu fremur mikil jólabörn, heimili þeirra eru alla vega ansi jólaleg. Þeir vilja þó ekki vera mjög áberandi, jólaseríurnar eru flestar hvítar, þó sést í eina og eina í öðrum lit. Algengt er að sjá jólatré á svölunum hjá fólki, flest eru þau með seríum og sum meira að segja skreytt jólakúlum og öllum pakkanum. Margir eru líka búnir að setja upp jólatréð inni og vorum við einmitt að fylgjast með því þegar nágranni okkar var að skreyta það hjá sér í gær. Strax þriðja í jólum er eins og það hafi ekki verið jól, allt búið, jólatrén komin út, slökkt á öllum seríum og útsölur hafnar í öllum búðum. Við höldum í okkar íslensku hefð, séría í öllum regnbogans litum á svölunum og jólatréð ekki upp fyrr en á Þorláksmessu og ekki tekið niður aftur fyrr en á þrettándanum. Danir skilja ekkert í þessum þrettán jólasveinum sem við eigum.

Laugavegurinn 2013

Hópurinn safnaðist saman kl. 3:50 við Ásvelli. Vorum komin við Skautahöllina tímanlega, en samt voru flestar rútur orðnar fullar, þannig við fengum aftasta bekkinn í einni rútunni, auk tveggja stakra sæta. Keyrt var að Hrauneyjum, en þar stoppaði rútan í 25 mín. Tími fór í að bíða eftir klósettum og síðan var löng röð í morgunmatinn. Við rétt náðum í brauð og kaffi til að taka með okkur í rútuna. Kaffið var gott, en ákveðið var að taka með nesti næst. Við vorum kom í Landmannalaugar um 8:20.. þá átti eftir að skrá sig og pissa og setja vatn á brúsa.. Bæta þurfti á fötum og fleira. Þetta rétt hafðist fyrir ræsingu. Allur hópurinn lagði af stað saman. Jóney og Júlíana fóru þó strax í upphafi á undan. Við fjórar héldum hópinn í Hrafntinnusker. Björgvin var aðeins á eftir okkur. Mér fannst erfitt að fara yfir snjóbreiðurnar en þær voru á tveggja km kafla fyrir Hrafntinnusker. Þar sem ég vissi hve kaflinn var langur þá átti ég auðveldara með að komast yfir. Eftir Hrafntinnusker missti ég ...

Að hefja samtöl og opna dyr: Hvernig skólastjórar koma á jákvæðri menningu til að viðhalda umbótastarfi skóla

 Þetta byggist allt á trausti...  Hægt er að líka trausti við loft; enginn veltir skorti á því mikið fyrir sér fyrr en þess er þörf og það er ekki til staðar (Hoy og Miskel, 2013). Traust innan skóla er mikilvægt vegna þess að það auðveldar samvinnu, eykur hreinskilni, stuðlar að samheldni, styður fagmennsku, byggir upp skipulagsgetu og allt þetta stuðlar að bættum námsárangri hjá nemendum. Faglegt samstarfi byggir á gagnkvæmu trausti. Hoy og Miskel tala um að í traustu samstarfi séu einstaklingar háðir hver öðrum; það er, hagsmuni eins er ekki hægt að tryggja án þess að til staðar sé traust á öðrum. Traust þarf að ríkja meðal kennara, annars starfsfólks, stjórnenda, nemenda og foreldra. Þegar starfsfólk ber mikið traust til skólastjóra, telur það að hann sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur og opinn í samskiptum. Þannig er traust vilji starfsfólks til að berskjalda sig fyrir öðrum, byggt á þeirri trú að sá aðili sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur ...