Fara í aðalinnihald

mikil vinna

Helgin var hreint út sagt yndisleg. Ég byrjaði hana á föstudagskvöldið á svölunum hjá Hrafnhildi og Viðari. Ég hafði ekki hitt vinafólkið í næsta húsi í tæpan mánuð, nema í mýflugumynd. Við Hrafnhildur fengum okkur smá rautt og líka aðeins hvítt.
Á laugardaginn var horft á smá sund í sjónvarpinu og síðan var haldið niður í bæ. Veðrið var frábært. Við byrjuðum á að fara á handverksmarkað sem er haldinn árlega við Frúarkirkjuna. Þar er selt alls kyns handverk úr keramiki, postúlíni, gleri, silki, gulli, silfri og fl. Við fórum síðan á ítalskan markað við Thorvaldsens safnið. Þar var hægt að kaupa meira matarkyns og fengum við okkur þar smá í gogginn. Við enduðum bæjarferðina á að fara upp á Ráðhústorg og fylgjast með "gay-pride" göngunni, sem var ekki síður skrautleg en í fyrra.
Sunnudagurinn far heldur rólegri, helgaður dagbókarskrifum, bréfaskriftum, skokki og rólegheitum.
Vinnudagurinn var langur í dag. Ég var að vinna til kl. 17:30 (þurfti að loka í dag). Ég slapp þó við starfsmannafund sem átti að halda í lok vinnudags (það er ótrúlegt, það eru alltaf einhverjir veikir). Ég hefði reyndar viljað hafa fund, því að það er margt sem ég vil koma til skila til samstarfsmanna og yfirmanna.
Það rigndi líka aðeins í dag, sumrarið tók frí (vonandi ekki búið).

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Ég held að Danir séu fremur mikil jólabörn, heimili þeirra eru alla vega ansi jólaleg. Þeir vilja þó ekki vera mjög áberandi, jólaseríurnar eru flestar hvítar, þó sést í eina og eina í öðrum lit. Algengt er að sjá jólatré á svölunum hjá fólki, flest eru þau með seríum og sum meira að segja skreytt jólakúlum og öllum pakkanum. Margir eru líka búnir að setja upp jólatréð inni og vorum við einmitt að fylgjast með því þegar nágranni okkar var að skreyta það hjá sér í gær. Strax þriðja í jólum er eins og það hafi ekki verið jól, allt búið, jólatrén komin út, slökkt á öllum seríum og útsölur hafnar í öllum búðum. Við höldum í okkar íslensku hefð, séría í öllum regnbogans litum á svölunum og jólatréð ekki upp fyrr en á Þorláksmessu og ekki tekið niður aftur fyrr en á þrettándanum. Danir skilja ekkert í þessum þrettán jólasveinum sem við eigum.

Laugavegurinn 2013

Hópurinn safnaðist saman kl. 3:50 við Ásvelli. Vorum komin við Skautahöllina tímanlega, en samt voru flestar rútur orðnar fullar, þannig við fengum aftasta bekkinn í einni rútunni, auk tveggja stakra sæta. Keyrt var að Hrauneyjum, en þar stoppaði rútan í 25 mín. Tími fór í að bíða eftir klósettum og síðan var löng röð í morgunmatinn. Við rétt náðum í brauð og kaffi til að taka með okkur í rútuna. Kaffið var gott, en ákveðið var að taka með nesti næst. Við vorum kom í Landmannalaugar um 8:20.. þá átti eftir að skrá sig og pissa og setja vatn á brúsa.. Bæta þurfti á fötum og fleira. Þetta rétt hafðist fyrir ræsingu. Allur hópurinn lagði af stað saman. Jóney og Júlíana fóru þó strax í upphafi á undan. Við fjórar héldum hópinn í Hrafntinnusker. Björgvin var aðeins á eftir okkur. Mér fannst erfitt að fara yfir snjóbreiðurnar en þær voru á tveggja km kafla fyrir Hrafntinnusker. Þar sem ég vissi hve kaflinn var langur þá átti ég auðveldara með að komast yfir. Eftir Hrafntinnusker missti ég ...

Að hefja samtöl og opna dyr: Hvernig skólastjórar koma á jákvæðri menningu til að viðhalda umbótastarfi skóla

 Þetta byggist allt á trausti...  Hægt er að líka trausti við loft; enginn veltir skorti á því mikið fyrir sér fyrr en þess er þörf og það er ekki til staðar (Hoy og Miskel, 2013). Traust innan skóla er mikilvægt vegna þess að það auðveldar samvinnu, eykur hreinskilni, stuðlar að samheldni, styður fagmennsku, byggir upp skipulagsgetu og allt þetta stuðlar að bættum námsárangri hjá nemendum. Faglegt samstarfi byggir á gagnkvæmu trausti. Hoy og Miskel tala um að í traustu samstarfi séu einstaklingar háðir hver öðrum; það er, hagsmuni eins er ekki hægt að tryggja án þess að til staðar sé traust á öðrum. Traust þarf að ríkja meðal kennara, annars starfsfólks, stjórnenda, nemenda og foreldra. Þegar starfsfólk ber mikið traust til skólastjóra, telur það að hann sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur og opinn í samskiptum. Þannig er traust vilji starfsfólks til að berskjalda sig fyrir öðrum, byggt á þeirri trú að sá aðili sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur ...