Fara í aðalinnihald

Tandslet

Aðventan er skollin á og ég keypti aðventukransinn í dag. Ég ákvað að splæsa flottum kransi á heimilið í þetta sinn. Hérna er jólaskrautið ennþá úti í geymslu, dótturinni til mikillar armæðu. Hún skilur ekki alveg í móðurinni að vera ekki búin að rífa allt upp og gera allt klárt. En vonandi gefst okkur tími til að setja upp jóla e-ð fyrir helgina.
Við lögðum af stað til Tandslet strax eftir vinnu á föstudaginn og vorum komin til Lóa og Þóreyjar um hálf tíu. Við ætluðum að taka ferju milli Fjóns og Als, en misstum af henni, þar sem við villtumst. Stoppuðum á bensínstöð og keyptum þessa fínu kortabók og eftir það gekk allt að óskum (vorum þó allan tímann með kort í hanskahólfinu frá bílaleigunni, vissum bara ekki af því). Strax á föstudagskvöldið vorum við leidd um allan skólann, ekkert smá húsnæði fyrir 60 börn. Krakkarnir fengu að leika sér í íþróttasalnum á meðan. Á laugardagsmorguninn fengum við Björn okkur göngutúr um hluta af þorpinu. Þetta er alvöru sveit, þarna eru svín, beljur, geitur, hestar og allt. Ég var ekki lengi að finna út fullt af hlaupaleiðum um sveitina. Eftir hádegi keyrðum við yfir til Þýskalands. Við byrjuðum á að rölta um miðbæ Flensborgar, þar var þessi fína jólastemning. Við fórum líka í eitt af stóru verslunarmiðstöðum borgarinnar og enduðum í ,,grensubúðinni". Um kvöldið eldaði Þórey dýrindismat og síðan var spiluð kínaskák og síkvens fram á nótt). Á sunnudaginn fórum við aftur í göngutúr, en nú undir leiðsögn hjónanna. Við lögðum síðan af stað um hádegi frá Tandslet, en núna náðum við ferjunni, villtumst ekkert, enda var okkur fylgt af fjölskyldunni út á bryggjupollann.
Við dóluðum okkur í gegnum Fjón, keyrðum meðfram ströndinni, í gegnum fullt af litlum, skemmtilegum bæjum. þegar komið var á Sjáland, þá var farið að dimma og við keyrðum E20 alla leiðina heim. Komin heim um kvöldmat, sæl, en þreytt eftir frábæra helgi.

Nú er aftur á móti að hellast yfir mig stress, því að ég þarf að skila ritgerð 15. des, sem ég er ekki byrjuð á (bara byrjuð að hugsa). Ég dreif mig því út í dag og lauk við að kaupa restina af jólagjöfunum, því að allar þurfa þær að sendast úr landi.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Ég held að Danir séu fremur mikil jólabörn, heimili þeirra eru alla vega ansi jólaleg. Þeir vilja þó ekki vera mjög áberandi, jólaseríurnar eru flestar hvítar, þó sést í eina og eina í öðrum lit. Algengt er að sjá jólatré á svölunum hjá fólki, flest eru þau með seríum og sum meira að segja skreytt jólakúlum og öllum pakkanum. Margir eru líka búnir að setja upp jólatréð inni og vorum við einmitt að fylgjast með því þegar nágranni okkar var að skreyta það hjá sér í gær. Strax þriðja í jólum er eins og það hafi ekki verið jól, allt búið, jólatrén komin út, slökkt á öllum seríum og útsölur hafnar í öllum búðum. Við höldum í okkar íslensku hefð, séría í öllum regnbogans litum á svölunum og jólatréð ekki upp fyrr en á Þorláksmessu og ekki tekið niður aftur fyrr en á þrettándanum. Danir skilja ekkert í þessum þrettán jólasveinum sem við eigum.

Laugavegurinn 2013

Hópurinn safnaðist saman kl. 3:50 við Ásvelli. Vorum komin við Skautahöllina tímanlega, en samt voru flestar rútur orðnar fullar, þannig við fengum aftasta bekkinn í einni rútunni, auk tveggja stakra sæta. Keyrt var að Hrauneyjum, en þar stoppaði rútan í 25 mín. Tími fór í að bíða eftir klósettum og síðan var löng röð í morgunmatinn. Við rétt náðum í brauð og kaffi til að taka með okkur í rútuna. Kaffið var gott, en ákveðið var að taka með nesti næst. Við vorum kom í Landmannalaugar um 8:20.. þá átti eftir að skrá sig og pissa og setja vatn á brúsa.. Bæta þurfti á fötum og fleira. Þetta rétt hafðist fyrir ræsingu. Allur hópurinn lagði af stað saman. Jóney og Júlíana fóru þó strax í upphafi á undan. Við fjórar héldum hópinn í Hrafntinnusker. Björgvin var aðeins á eftir okkur. Mér fannst erfitt að fara yfir snjóbreiðurnar en þær voru á tveggja km kafla fyrir Hrafntinnusker. Þar sem ég vissi hve kaflinn var langur þá átti ég auðveldara með að komast yfir. Eftir Hrafntinnusker missti ég ...

Að hefja samtöl og opna dyr: Hvernig skólastjórar koma á jákvæðri menningu til að viðhalda umbótastarfi skóla

 Þetta byggist allt á trausti...  Hægt er að líka trausti við loft; enginn veltir skorti á því mikið fyrir sér fyrr en þess er þörf og það er ekki til staðar (Hoy og Miskel, 2013). Traust innan skóla er mikilvægt vegna þess að það auðveldar samvinnu, eykur hreinskilni, stuðlar að samheldni, styður fagmennsku, byggir upp skipulagsgetu og allt þetta stuðlar að bættum námsárangri hjá nemendum. Faglegt samstarfi byggir á gagnkvæmu trausti. Hoy og Miskel tala um að í traustu samstarfi séu einstaklingar háðir hver öðrum; það er, hagsmuni eins er ekki hægt að tryggja án þess að til staðar sé traust á öðrum. Traust þarf að ríkja meðal kennara, annars starfsfólks, stjórnenda, nemenda og foreldra. Þegar starfsfólk ber mikið traust til skólastjóra, telur það að hann sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur og opinn í samskiptum. Þannig er traust vilji starfsfólks til að berskjalda sig fyrir öðrum, byggt á þeirri trú að sá aðili sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur ...