Fara í aðalinnihald

Vorið hvað?

Í fyrra um þetta leyti kom smá vor, en stóð mjög stutt yfir. Í dag snjóar og það er fremur kalt og ég held að það sé ekki von á neinu vori á næstunni og eins og mér sé ekki alveg saman. Ok, ég er orðin soldið leið á kulda og snjó, en ég hef víst ekki mikið um þetta að segja, ræð víst akkúrat engu um hvort sólin skín eða ekki.

Vikan er búin að vera mjög fín. Trúnaðarmannanámskeiðið var mjög gott, sex daga maraþon yfirferð. Í gær var starfsdagur í vinnunni og var mjög skipulögð vinna allan daginn, fyrst um foreldrasamstarf og síðan um vinnutímaskipulag. Við vorum tiltölulega snemma búin að skipuleggja okkar vinnutíma (þó með smá rokum og árekstrum við yfirmenn).

Í dag fórum við hjónin í DPU (gamla skólann minn) og sóttum okkur nokkrar fagbækur. Ég er að undirbúa ritgerð sem ég þarf að ljúka á mettíma, er að komast í tímaþröng með nokkur verkefni í KHÍ. Við skelltum okkur á sitt kaffihúsið hvort, ég var að hitta konu og Björn fór að skrifa og lesa. Við vorum bara að koma inn og ég er að fara að lesa og byrja að pota í eitt verkefni.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hæ! Greiði því atkvæði að þið flytjið í Fjörðinn. Hvað um það, hvernig gengur að taka mynd af Kristínu Björgu í fermingarfræðslunni? Vil birta við hana snoturt viðtal í blaðinu næsta föstudag. Láttu mig vita hvort hún er til í það. Þá hringi ég að bragði og spjalla við hana. Kær kveðja, Arndís.
p.s. héldum upp á afmæli Hrings í gær og óska þér til hamingju með mömmu þína í dag.
Margrét sagði…
Hæ Arndís.
Ég hef tapað netfanginu þínu, en vonandi lestu þetta. Kristín Björg er til og ég er enga stund að taka eina fína mynd af henni.

Hafðu samband við mig á netfangið mitt:
margrsve@gmail.com
Margrét sagði…
Sló að sjálfsögðu netfangið rangt inn, það er:
margsve@gmail.com

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Ég held að Danir séu fremur mikil jólabörn, heimili þeirra eru alla vega ansi jólaleg. Þeir vilja þó ekki vera mjög áberandi, jólaseríurnar eru flestar hvítar, þó sést í eina og eina í öðrum lit. Algengt er að sjá jólatré á svölunum hjá fólki, flest eru þau með seríum og sum meira að segja skreytt jólakúlum og öllum pakkanum. Margir eru líka búnir að setja upp jólatréð inni og vorum við einmitt að fylgjast með því þegar nágranni okkar var að skreyta það hjá sér í gær. Strax þriðja í jólum er eins og það hafi ekki verið jól, allt búið, jólatrén komin út, slökkt á öllum seríum og útsölur hafnar í öllum búðum. Við höldum í okkar íslensku hefð, séría í öllum regnbogans litum á svölunum og jólatréð ekki upp fyrr en á Þorláksmessu og ekki tekið niður aftur fyrr en á þrettándanum. Danir skilja ekkert í þessum þrettán jólasveinum sem við eigum.

Laugavegurinn 2013

Hópurinn safnaðist saman kl. 3:50 við Ásvelli. Vorum komin við Skautahöllina tímanlega, en samt voru flestar rútur orðnar fullar, þannig við fengum aftasta bekkinn í einni rútunni, auk tveggja stakra sæta. Keyrt var að Hrauneyjum, en þar stoppaði rútan í 25 mín. Tími fór í að bíða eftir klósettum og síðan var löng röð í morgunmatinn. Við rétt náðum í brauð og kaffi til að taka með okkur í rútuna. Kaffið var gott, en ákveðið var að taka með nesti næst. Við vorum kom í Landmannalaugar um 8:20.. þá átti eftir að skrá sig og pissa og setja vatn á brúsa.. Bæta þurfti á fötum og fleira. Þetta rétt hafðist fyrir ræsingu. Allur hópurinn lagði af stað saman. Jóney og Júlíana fóru þó strax í upphafi á undan. Við fjórar héldum hópinn í Hrafntinnusker. Björgvin var aðeins á eftir okkur. Mér fannst erfitt að fara yfir snjóbreiðurnar en þær voru á tveggja km kafla fyrir Hrafntinnusker. Þar sem ég vissi hve kaflinn var langur þá átti ég auðveldara með að komast yfir. Eftir Hrafntinnusker missti ég ...

Að hefja samtöl og opna dyr: Hvernig skólastjórar koma á jákvæðri menningu til að viðhalda umbótastarfi skóla

 Þetta byggist allt á trausti...  Hægt er að líka trausti við loft; enginn veltir skorti á því mikið fyrir sér fyrr en þess er þörf og það er ekki til staðar (Hoy og Miskel, 2013). Traust innan skóla er mikilvægt vegna þess að það auðveldar samvinnu, eykur hreinskilni, stuðlar að samheldni, styður fagmennsku, byggir upp skipulagsgetu og allt þetta stuðlar að bættum námsárangri hjá nemendum. Faglegt samstarfi byggir á gagnkvæmu trausti. Hoy og Miskel tala um að í traustu samstarfi séu einstaklingar háðir hver öðrum; það er, hagsmuni eins er ekki hægt að tryggja án þess að til staðar sé traust á öðrum. Traust þarf að ríkja meðal kennara, annars starfsfólks, stjórnenda, nemenda og foreldra. Þegar starfsfólk ber mikið traust til skólastjóra, telur það að hann sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur og opinn í samskiptum. Þannig er traust vilji starfsfólks til að berskjalda sig fyrir öðrum, byggt á þeirri trú að sá aðili sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur ...