Fara í aðalinnihald

Starfendarannsóknir

Eitthvað gengur mér illa að skrifa jafnt og þétt hérna inn á þetta fína blogg.
En þessa dagana er ég að keppast við að ljúka við verkefnin sem ég á að skila inn í fyrir næstu mánaðarmót á námskeiðinu í kennó. Ég skrifa dæmissögur (case study), starfendarrannsókn og aðra starfendarannsókn. Ég ætti því bráðum að verða fullnuma í sjálfri mér sem persónu, kennara og pædagog. Er endalaust, aftur og aftur að skoða hvað ég geri rétt og rangt. En þessi pæling er holl og ég mæli með því að allir kennarar taki sig í gegn og athugi af hverju þeir geri hlutina eins og þeir gera þá.

Helgin er annars búin að vera yndisleg og veðrið búið að leika við okkur. Á laugardaginn fórum við Kristín Björg út rétt eftir hádegi, hana vantaði einhvern fínan bol til að vera í fermingarveislu vinkonu sinnar. Það tók okkur aðeins lengri tíma en við áætluðum. Við ætluðum nefnilega að hitta Björn um tvöleytið og vera komin í Glostrup kl. þrjú. En þangað vorum við komin kl. hálffjögur. Kristín Björg varð þar eftir, hún var að passa fyrir vinafólk okkar, Láru og Einar og við fjögur héldum síðan áfram til Græsted til Sigrúnar og Einars. Við áttum þar frábæran eftirmiðdag og kvöld, borðuðum góðan mat og spjölluðum um lífið og tilveruna.

Sunnudagurinn fór í ritgerðarvinnu, þó með kaffihúsahléi. Skrapp niður í bæ og hitti þar góða vinkonu og aftur var lífið krufið til mergjar.
Kristín Björg fór í fermingu vinkonunnar í gær og þegar hún kom heim í gærkvöldi eftir allan daginn, sagði hún mér að mamma vinkonu hennar hefði komið með ICY VODKA flösku og sagt að þær mættu skipta henni á milli sín og hellti síðan í tvö glös. Fermingarbarnið fékk rauðvín með matnum og solleiðis, það er sko aldeilis spennandi að fermast í útlöndum.

Í morgun, já haldið ykkur, var ég komin á fætur kl. fimm og búin að skokka, fara í sturtu og borða kl. sex og sest við tölvuna. Ég ætlaði reyndar að vera ótrúlega dugleg að læra, en hef verið duglegri við e-ð annað, eins og að borga reikninga og blogga.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Ég held að Danir séu fremur mikil jólabörn, heimili þeirra eru alla vega ansi jólaleg. Þeir vilja þó ekki vera mjög áberandi, jólaseríurnar eru flestar hvítar, þó sést í eina og eina í öðrum lit. Algengt er að sjá jólatré á svölunum hjá fólki, flest eru þau með seríum og sum meira að segja skreytt jólakúlum og öllum pakkanum. Margir eru líka búnir að setja upp jólatréð inni og vorum við einmitt að fylgjast með því þegar nágranni okkar var að skreyta það hjá sér í gær. Strax þriðja í jólum er eins og það hafi ekki verið jól, allt búið, jólatrén komin út, slökkt á öllum seríum og útsölur hafnar í öllum búðum. Við höldum í okkar íslensku hefð, séría í öllum regnbogans litum á svölunum og jólatréð ekki upp fyrr en á Þorláksmessu og ekki tekið niður aftur fyrr en á þrettándanum. Danir skilja ekkert í þessum þrettán jólasveinum sem við eigum.

Laugavegurinn 2013

Hópurinn safnaðist saman kl. 3:50 við Ásvelli. Vorum komin við Skautahöllina tímanlega, en samt voru flestar rútur orðnar fullar, þannig við fengum aftasta bekkinn í einni rútunni, auk tveggja stakra sæta. Keyrt var að Hrauneyjum, en þar stoppaði rútan í 25 mín. Tími fór í að bíða eftir klósettum og síðan var löng röð í morgunmatinn. Við rétt náðum í brauð og kaffi til að taka með okkur í rútuna. Kaffið var gott, en ákveðið var að taka með nesti næst. Við vorum kom í Landmannalaugar um 8:20.. þá átti eftir að skrá sig og pissa og setja vatn á brúsa.. Bæta þurfti á fötum og fleira. Þetta rétt hafðist fyrir ræsingu. Allur hópurinn lagði af stað saman. Jóney og Júlíana fóru þó strax í upphafi á undan. Við fjórar héldum hópinn í Hrafntinnusker. Björgvin var aðeins á eftir okkur. Mér fannst erfitt að fara yfir snjóbreiðurnar en þær voru á tveggja km kafla fyrir Hrafntinnusker. Þar sem ég vissi hve kaflinn var langur þá átti ég auðveldara með að komast yfir. Eftir Hrafntinnusker missti ég ...

Að hefja samtöl og opna dyr: Hvernig skólastjórar koma á jákvæðri menningu til að viðhalda umbótastarfi skóla

 Þetta byggist allt á trausti...  Hægt er að líka trausti við loft; enginn veltir skorti á því mikið fyrir sér fyrr en þess er þörf og það er ekki til staðar (Hoy og Miskel, 2013). Traust innan skóla er mikilvægt vegna þess að það auðveldar samvinnu, eykur hreinskilni, stuðlar að samheldni, styður fagmennsku, byggir upp skipulagsgetu og allt þetta stuðlar að bættum námsárangri hjá nemendum. Faglegt samstarfi byggir á gagnkvæmu trausti. Hoy og Miskel tala um að í traustu samstarfi séu einstaklingar háðir hver öðrum; það er, hagsmuni eins er ekki hægt að tryggja án þess að til staðar sé traust á öðrum. Traust þarf að ríkja meðal kennara, annars starfsfólks, stjórnenda, nemenda og foreldra. Þegar starfsfólk ber mikið traust til skólastjóra, telur það að hann sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur og opinn í samskiptum. Þannig er traust vilji starfsfólks til að berskjalda sig fyrir öðrum, byggt á þeirri trú að sá aðili sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur ...