Fara í aðalinnihald

Helgi í Brussel

Við höfum áttum mjög rólega og náðuga helgi hérna í Brussel. Við notuðum daginn í gær til að heimsækja sem heitir Brugge. Mjög skemmtilegur og fallegur bær. Við létum ekki aðeins nægja að ganga um skemmtilegar göturnar, heldur fórum líka í siglingu um síkin. Líflega og fróðlega leiðsögn fylgdi með og vorum við örlítið fróðari um þennan gamla bæ.
Við fengum okkur belgískar vöfflur og ís á kaffihúsi og síðan var lagt af stað heim.
Við héldum veislu þegar heim var komið. Eldaður var veislukjúklingur að hætti húsbóndans. Börnin fengu barnavín, en fullorðnir fengu alvörunni.
Eftir kvöldmat var spilað Sequence og var setið við fram á nótt (sumir spiluðu fleiri spil en aðrir).
Í dag, sunnudag, var byrjað á því að fara með börnin í barnaland sem heitir "Flying Kids". Á meðan þau léku sér, sátum við, sötruðum kaffi og lásum. Kíktum við í garðinn hjá Anga og Þórunni, vinafólks Jakobs og fjölskyldu. Þar hafði verið felld nokkur risatré sem urðu fyrir eldingu í sumar (það var víst ansi mikil breyting á garðinum).
Jakob Falur skutlaði okkur Birni niður í bæ og skoðuðum við nokkrar antik- og húsgagnaverslanir og höfðum gaman af. Enduðum bæjarferðina á kaffidrykkju á Sablon-torgi. Tókum Metró og sporvagn heim.
Elduðum pasta í tómatssósu, með fersku salati og brauði.
Nú sitja þeir bræður og spila "Gettu betur" Ég kom mér að sjálsögðu undan því að spila þetta frábæra spil.
Á morgun ætlum við að skella okkur til Luxemborgar og heimsækja Ingva Guttormsson frænda þeirra bræðra.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Ég held að Danir séu fremur mikil jólabörn, heimili þeirra eru alla vega ansi jólaleg. Þeir vilja þó ekki vera mjög áberandi, jólaseríurnar eru flestar hvítar, þó sést í eina og eina í öðrum lit. Algengt er að sjá jólatré á svölunum hjá fólki, flest eru þau með seríum og sum meira að segja skreytt jólakúlum og öllum pakkanum. Margir eru líka búnir að setja upp jólatréð inni og vorum við einmitt að fylgjast með því þegar nágranni okkar var að skreyta það hjá sér í gær. Strax þriðja í jólum er eins og það hafi ekki verið jól, allt búið, jólatrén komin út, slökkt á öllum seríum og útsölur hafnar í öllum búðum. Við höldum í okkar íslensku hefð, séría í öllum regnbogans litum á svölunum og jólatréð ekki upp fyrr en á Þorláksmessu og ekki tekið niður aftur fyrr en á þrettándanum. Danir skilja ekkert í þessum þrettán jólasveinum sem við eigum.

Laugavegurinn 2013

Hópurinn safnaðist saman kl. 3:50 við Ásvelli. Vorum komin við Skautahöllina tímanlega, en samt voru flestar rútur orðnar fullar, þannig við fengum aftasta bekkinn í einni rútunni, auk tveggja stakra sæta. Keyrt var að Hrauneyjum, en þar stoppaði rútan í 25 mín. Tími fór í að bíða eftir klósettum og síðan var löng röð í morgunmatinn. Við rétt náðum í brauð og kaffi til að taka með okkur í rútuna. Kaffið var gott, en ákveðið var að taka með nesti næst. Við vorum kom í Landmannalaugar um 8:20.. þá átti eftir að skrá sig og pissa og setja vatn á brúsa.. Bæta þurfti á fötum og fleira. Þetta rétt hafðist fyrir ræsingu. Allur hópurinn lagði af stað saman. Jóney og Júlíana fóru þó strax í upphafi á undan. Við fjórar héldum hópinn í Hrafntinnusker. Björgvin var aðeins á eftir okkur. Mér fannst erfitt að fara yfir snjóbreiðurnar en þær voru á tveggja km kafla fyrir Hrafntinnusker. Þar sem ég vissi hve kaflinn var langur þá átti ég auðveldara með að komast yfir. Eftir Hrafntinnusker missti ég ...

Að hefja samtöl og opna dyr: Hvernig skólastjórar koma á jákvæðri menningu til að viðhalda umbótastarfi skóla

 Þetta byggist allt á trausti...  Hægt er að líka trausti við loft; enginn veltir skorti á því mikið fyrir sér fyrr en þess er þörf og það er ekki til staðar (Hoy og Miskel, 2013). Traust innan skóla er mikilvægt vegna þess að það auðveldar samvinnu, eykur hreinskilni, stuðlar að samheldni, styður fagmennsku, byggir upp skipulagsgetu og allt þetta stuðlar að bættum námsárangri hjá nemendum. Faglegt samstarfi byggir á gagnkvæmu trausti. Hoy og Miskel tala um að í traustu samstarfi séu einstaklingar háðir hver öðrum; það er, hagsmuni eins er ekki hægt að tryggja án þess að til staðar sé traust á öðrum. Traust þarf að ríkja meðal kennara, annars starfsfólks, stjórnenda, nemenda og foreldra. Þegar starfsfólk ber mikið traust til skólastjóra, telur það að hann sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur og opinn í samskiptum. Þannig er traust vilji starfsfólks til að berskjalda sig fyrir öðrum, byggt á þeirri trú að sá aðili sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur ...