Fara í aðalinnihald

Akureyri

Magga Jóh. vinkona mín og fyrrum samstarfskona mín úr Borgarnesi sótti mig fljótlega eftir vinnu á föstudaginn. Við brunuðum upp í Borgarnes. Þar hitti ég ennþá fleiri góðar vinkonur úr Nesinu. Flutti mig yfir í bílinn til Ingu Margrétar, en þar voru fyrir Guðrún Rebekka og Sæja, að ógleymdum Atla Steinari. Magga fór yfir í bílinn til Ásdísar. Við brunuðum af stað til Akureyrar. Tilefni ferðarinnar var ráðstefna um söguaðferðina. Tólf frábærar konur fóru frá Borgarnesi og buðu mér að koma með, sem ég þáði með þökkum. Við vorum komnar á leiðarenda upp úr kvöldmat, komum okkur fyrir á frábæru íbúðarhóteli síðan var farið á Bautan að borða. Á Akureyri hafði snjó kyngt niður og sat snjór á laufguðum trjánum, mjög tilkomumikið og fallegt, en allt of snemma að mínu mati. Ég er nefnilega hin mesta kuldaskræfa.
Á laugardaginn var byrjað á því að skella sér í bakarí og fengið sér í gogginn. Ráðstefnan byrjaði kl. 9:45 og stóð allan daginn. Þetta var meiriháttar og erum við margar búnar að ákveða að skella okkur til Glasgow í október að ári. Eftir ráðstefnuslit var kíkt í jólahúsið og síðan keyptur Brynjuís.
Við borðuðum flestar á Fiðlaranum um kvöldið. Fengum þar frábæran mat og geggjaða þjónustu. Sátum þar fram eftir kvöldi og síðan var flutt sig yfir í aðra íbúðina og haldið áfram að spjalla. Við máttum ekkert vera að því að fara á pöbb, því það þurfti að tala svo mikið.
Í gær var ennþá meiri snjór og keyrðum við í snjó og vetri þangað til við komum niður í Norðurárdalinn, en þá tók kalda haustið við. Við Ásdís vorum svo lánsamar að Ingi T. var búinn að setja lambalæri í ofninn og buðu þau hjónin okkur í mat. Ég var rétt búin að kingja ísnum og kaffinu þegar ég þurfti að rjúka (missti næstum því af rútunni).
Það var yndislegt að koma heim. Allt út úr dyrum pússað og enn ein veislan beið mín.
Ég er lukkunar pamfíll.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Ég held að Danir séu fremur mikil jólabörn, heimili þeirra eru alla vega ansi jólaleg. Þeir vilja þó ekki vera mjög áberandi, jólaseríurnar eru flestar hvítar, þó sést í eina og eina í öðrum lit. Algengt er að sjá jólatré á svölunum hjá fólki, flest eru þau með seríum og sum meira að segja skreytt jólakúlum og öllum pakkanum. Margir eru líka búnir að setja upp jólatréð inni og vorum við einmitt að fylgjast með því þegar nágranni okkar var að skreyta það hjá sér í gær. Strax þriðja í jólum er eins og það hafi ekki verið jól, allt búið, jólatrén komin út, slökkt á öllum seríum og útsölur hafnar í öllum búðum. Við höldum í okkar íslensku hefð, séría í öllum regnbogans litum á svölunum og jólatréð ekki upp fyrr en á Þorláksmessu og ekki tekið niður aftur fyrr en á þrettándanum. Danir skilja ekkert í þessum þrettán jólasveinum sem við eigum.

Laugavegurinn 2013

Hópurinn safnaðist saman kl. 3:50 við Ásvelli. Vorum komin við Skautahöllina tímanlega, en samt voru flestar rútur orðnar fullar, þannig við fengum aftasta bekkinn í einni rútunni, auk tveggja stakra sæta. Keyrt var að Hrauneyjum, en þar stoppaði rútan í 25 mín. Tími fór í að bíða eftir klósettum og síðan var löng röð í morgunmatinn. Við rétt náðum í brauð og kaffi til að taka með okkur í rútuna. Kaffið var gott, en ákveðið var að taka með nesti næst. Við vorum kom í Landmannalaugar um 8:20.. þá átti eftir að skrá sig og pissa og setja vatn á brúsa.. Bæta þurfti á fötum og fleira. Þetta rétt hafðist fyrir ræsingu. Allur hópurinn lagði af stað saman. Jóney og Júlíana fóru þó strax í upphafi á undan. Við fjórar héldum hópinn í Hrafntinnusker. Björgvin var aðeins á eftir okkur. Mér fannst erfitt að fara yfir snjóbreiðurnar en þær voru á tveggja km kafla fyrir Hrafntinnusker. Þar sem ég vissi hve kaflinn var langur þá átti ég auðveldara með að komast yfir. Eftir Hrafntinnusker missti ég ...

Að hefja samtöl og opna dyr: Hvernig skólastjórar koma á jákvæðri menningu til að viðhalda umbótastarfi skóla

 Þetta byggist allt á trausti...  Hægt er að líka trausti við loft; enginn veltir skorti á því mikið fyrir sér fyrr en þess er þörf og það er ekki til staðar (Hoy og Miskel, 2013). Traust innan skóla er mikilvægt vegna þess að það auðveldar samvinnu, eykur hreinskilni, stuðlar að samheldni, styður fagmennsku, byggir upp skipulagsgetu og allt þetta stuðlar að bættum námsárangri hjá nemendum. Faglegt samstarfi byggir á gagnkvæmu trausti. Hoy og Miskel tala um að í traustu samstarfi séu einstaklingar háðir hver öðrum; það er, hagsmuni eins er ekki hægt að tryggja án þess að til staðar sé traust á öðrum. Traust þarf að ríkja meðal kennara, annars starfsfólks, stjórnenda, nemenda og foreldra. Þegar starfsfólk ber mikið traust til skólastjóra, telur það að hann sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur og opinn í samskiptum. Þannig er traust vilji starfsfólks til að berskjalda sig fyrir öðrum, byggt á þeirri trú að sá aðili sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur ...