Fara í aðalinnihald

Þjóðhátiðarstemning

Það er gott að vita af því að það er einhvers staðar þarna á bak við skýin eitthvað gult og mjög heitt. Þetta risastóra ferlíki skín núna á landið sem ég yfirgaf fyrir tæpu ári og er víst búið að vera ansi heitt þar (kannski bara allt of heitt).
Mér gefst tími til að ljúka við að sortera dótið sem við sóttum í Lambhaga um hvítasunnuna. Það voru alltaf nokkrir kassar sem átti eftir að ákveða hvað ætti að gera við. Ég er lítið fyrir að geyma óþarfadót og vil bara henda því sem nýtist engum. En þegar kemur að bókum og ákveðnum fötum þá verð ég viðkvæm. Þó er ég búin að vera ansi dugleg, sjö kassar af bókum fóru í Góða hirðinn og á bókasafnið. Þessi aukna tiltektarárátta kemur til að því að íbúðin er 45 fm minni en íbúðin í Borgarnesi og geymslan er tveir fermetrar, undir stiga sem þýðir að lofthæðin er ekki mikil. Þess utan er hún óupphituð, þannig að allt sem inní hana fer kemur illa lyktandi út. Ég er því fastur gestur á Sorpu, þar sem ég er alltaf að losa mig við dót og þar að auki fremur vistvæn og fara dagblöð, fernur, pappi og fleira í sína gáma.

Það er best að halda áfram tiltektinni við rafmagnljós kl. 12:59 þann 16. júní sem á að vera með björtustu dögum landsins. En hvað um það lífið er dásamlegt.

Vel á minnst KBB er byrjuð að vinna hjá Bónusfeðgum, þó ekki í Bónus. Nei, hún byrjaði í næsta þrepi, er í appelsínugulum bol á kassa í Hagkaupum í Skeifunni.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Ég held að Danir séu fremur mikil jólabörn, heimili þeirra eru alla vega ansi jólaleg. Þeir vilja þó ekki vera mjög áberandi, jólaseríurnar eru flestar hvítar, þó sést í eina og eina í öðrum lit. Algengt er að sjá jólatré á svölunum hjá fólki, flest eru þau með seríum og sum meira að segja skreytt jólakúlum og öllum pakkanum. Margir eru líka búnir að setja upp jólatréð inni og vorum við einmitt að fylgjast með því þegar nágranni okkar var að skreyta það hjá sér í gær. Strax þriðja í jólum er eins og það hafi ekki verið jól, allt búið, jólatrén komin út, slökkt á öllum seríum og útsölur hafnar í öllum búðum. Við höldum í okkar íslensku hefð, séría í öllum regnbogans litum á svölunum og jólatréð ekki upp fyrr en á Þorláksmessu og ekki tekið niður aftur fyrr en á þrettándanum. Danir skilja ekkert í þessum þrettán jólasveinum sem við eigum.

Laugavegurinn 2013

Hópurinn safnaðist saman kl. 3:50 við Ásvelli. Vorum komin við Skautahöllina tímanlega, en samt voru flestar rútur orðnar fullar, þannig við fengum aftasta bekkinn í einni rútunni, auk tveggja stakra sæta. Keyrt var að Hrauneyjum, en þar stoppaði rútan í 25 mín. Tími fór í að bíða eftir klósettum og síðan var löng röð í morgunmatinn. Við rétt náðum í brauð og kaffi til að taka með okkur í rútuna. Kaffið var gott, en ákveðið var að taka með nesti næst. Við vorum kom í Landmannalaugar um 8:20.. þá átti eftir að skrá sig og pissa og setja vatn á brúsa.. Bæta þurfti á fötum og fleira. Þetta rétt hafðist fyrir ræsingu. Allur hópurinn lagði af stað saman. Jóney og Júlíana fóru þó strax í upphafi á undan. Við fjórar héldum hópinn í Hrafntinnusker. Björgvin var aðeins á eftir okkur. Mér fannst erfitt að fara yfir snjóbreiðurnar en þær voru á tveggja km kafla fyrir Hrafntinnusker. Þar sem ég vissi hve kaflinn var langur þá átti ég auðveldara með að komast yfir. Eftir Hrafntinnusker missti ég ...

Að hefja samtöl og opna dyr: Hvernig skólastjórar koma á jákvæðri menningu til að viðhalda umbótastarfi skóla

 Þetta byggist allt á trausti...  Hægt er að líka trausti við loft; enginn veltir skorti á því mikið fyrir sér fyrr en þess er þörf og það er ekki til staðar (Hoy og Miskel, 2013). Traust innan skóla er mikilvægt vegna þess að það auðveldar samvinnu, eykur hreinskilni, stuðlar að samheldni, styður fagmennsku, byggir upp skipulagsgetu og allt þetta stuðlar að bættum námsárangri hjá nemendum. Faglegt samstarfi byggir á gagnkvæmu trausti. Hoy og Miskel tala um að í traustu samstarfi séu einstaklingar háðir hver öðrum; það er, hagsmuni eins er ekki hægt að tryggja án þess að til staðar sé traust á öðrum. Traust þarf að ríkja meðal kennara, annars starfsfólks, stjórnenda, nemenda og foreldra. Þegar starfsfólk ber mikið traust til skólastjóra, telur það að hann sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur og opinn í samskiptum. Þannig er traust vilji starfsfólks til að berskjalda sig fyrir öðrum, byggt á þeirri trú að sá aðili sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur ...