Fara í aðalinnihald

Pabbi sjötugur

Ég er búin að ganga meira en á Tjarnarhnjúk í sumar. Við hjónin fórum í heiljarmikla göngu frá Helgarfellinu og að Bláfjallarafleggjaranum og Selvogsgötuna til baka, vorum fjóran og hálfan tíma á röltinu. Við Sverrir bróðir gengum á dyngjurnar Trölladyngju og Grænudyngju í gærkvöldi. Það var svo mikil þoka uppi á Grænudyngju að við vorum nokkurn tíma að átta okkur hvar við áttum að fara niður aftur.

Afmælisveisla pabba heppnaðist með stakri prýði á laugardaginn. Það er óhætt að segja að hann hafi verið rífandi hamingjusamur með daginn, komu margir vinir og ættingjar til að fagna með honum þessum merku tímamótum. Við fjölskyldan uppfylltum gamlan draum og gáfum honum hjól í afmælisgjöf. Hann á eftir að taka sig vel út í bænum á flotta Trek hjólinu og með hjálminn á hausnum.

Á þriðjudaginn skutluðum við KBB í Borgarnes. Hún var að fara með Rakel Ösp og Lilju Rún á sveitarsetrið að Láxárbakka og þar gistu þær í tvær nætur og á ég von á að hún komi heim með rútunni í kvöld. Við komum við á fyrrum heimili okkar á Egilsgötunni, við skyldum nefnlega eftir útigrill í geymslunni. Sóttum við grillið og kíktum í leiðinni á Gunnlaug og Jóhönnu. Mér fannst áhugavert a koma inn til þeirra og sjá hvernig þau hafa komið sér fyrir. Þau eiga svo mikið af fallegum húsgögnum myndum og voru ekki í í vandræðum með að fylla íbúðina.

Í dag er ég búin að skokka 10 km, nennti ekki að synda líka, þar sem mér fannst ég eiga svo mikið inni eftir fjallgönguna í gærkvöldi. Skellti mér því bara aðeins í pottinn. Rölti til mömmu í kaffi og spjall. Núna ætla ég að rölta niður í bæ, í bankann og fleira.

Ummæli

Gudrun Vala sagði…
hvaða hvaða, og ég sem var heima, þú manst bara eftir mér næst.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Ég held að Danir séu fremur mikil jólabörn, heimili þeirra eru alla vega ansi jólaleg. Þeir vilja þó ekki vera mjög áberandi, jólaseríurnar eru flestar hvítar, þó sést í eina og eina í öðrum lit. Algengt er að sjá jólatré á svölunum hjá fólki, flest eru þau með seríum og sum meira að segja skreytt jólakúlum og öllum pakkanum. Margir eru líka búnir að setja upp jólatréð inni og vorum við einmitt að fylgjast með því þegar nágranni okkar var að skreyta það hjá sér í gær. Strax þriðja í jólum er eins og það hafi ekki verið jól, allt búið, jólatrén komin út, slökkt á öllum seríum og útsölur hafnar í öllum búðum. Við höldum í okkar íslensku hefð, séría í öllum regnbogans litum á svölunum og jólatréð ekki upp fyrr en á Þorláksmessu og ekki tekið niður aftur fyrr en á þrettándanum. Danir skilja ekkert í þessum þrettán jólasveinum sem við eigum.

Laugavegurinn 2013

Hópurinn safnaðist saman kl. 3:50 við Ásvelli. Vorum komin við Skautahöllina tímanlega, en samt voru flestar rútur orðnar fullar, þannig við fengum aftasta bekkinn í einni rútunni, auk tveggja stakra sæta. Keyrt var að Hrauneyjum, en þar stoppaði rútan í 25 mín. Tími fór í að bíða eftir klósettum og síðan var löng röð í morgunmatinn. Við rétt náðum í brauð og kaffi til að taka með okkur í rútuna. Kaffið var gott, en ákveðið var að taka með nesti næst. Við vorum kom í Landmannalaugar um 8:20.. þá átti eftir að skrá sig og pissa og setja vatn á brúsa.. Bæta þurfti á fötum og fleira. Þetta rétt hafðist fyrir ræsingu. Allur hópurinn lagði af stað saman. Jóney og Júlíana fóru þó strax í upphafi á undan. Við fjórar héldum hópinn í Hrafntinnusker. Björgvin var aðeins á eftir okkur. Mér fannst erfitt að fara yfir snjóbreiðurnar en þær voru á tveggja km kafla fyrir Hrafntinnusker. Þar sem ég vissi hve kaflinn var langur þá átti ég auðveldara með að komast yfir. Eftir Hrafntinnusker missti ég ...

Að hefja samtöl og opna dyr: Hvernig skólastjórar koma á jákvæðri menningu til að viðhalda umbótastarfi skóla

 Þetta byggist allt á trausti...  Hægt er að líka trausti við loft; enginn veltir skorti á því mikið fyrir sér fyrr en þess er þörf og það er ekki til staðar (Hoy og Miskel, 2013). Traust innan skóla er mikilvægt vegna þess að það auðveldar samvinnu, eykur hreinskilni, stuðlar að samheldni, styður fagmennsku, byggir upp skipulagsgetu og allt þetta stuðlar að bættum námsárangri hjá nemendum. Faglegt samstarfi byggir á gagnkvæmu trausti. Hoy og Miskel tala um að í traustu samstarfi séu einstaklingar háðir hver öðrum; það er, hagsmuni eins er ekki hægt að tryggja án þess að til staðar sé traust á öðrum. Traust þarf að ríkja meðal kennara, annars starfsfólks, stjórnenda, nemenda og foreldra. Þegar starfsfólk ber mikið traust til skólastjóra, telur það að hann sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur og opinn í samskiptum. Þannig er traust vilji starfsfólks til að berskjalda sig fyrir öðrum, byggt á þeirri trú að sá aðili sé vel viljaður, áreiðanlegur, hæfur, heiðarlegur ...